15.7.2010 | 17:12
ROLLAN
Rollan hefur verið að gefa mokveiði í bleikjuám nú í sumar. Einnig hefur Glóðin rauð verið að gefa fína veiði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 14:36
FLUGUR TIL SÖLU
Sælir veiðimenn ég hef hnýtt talsvert fyrir búðir en ætla að söðla um og bjóða ykkur þær til sölu.
Ég nota tonnatak á alla mínar flugur svo að hausinn rakni ekki upp og nota það óspart.
Ein undantekning er þó ég not lakk á búkinn á ROLLUNI og er hún böðuð af lakki.
Margar af mínum flugun eru þyngdar með TUNGSTEN ræmun og eru mjög þungar svo þær sökkva hratt . Tungstenið er sett á bakið á flugunum svo þær þyngstu snúast við í vatninu og sökkva hratt og byrja að veiða fyrr ,og er það ekki það sem við viljum að flugurnar byrja að veiða strax og þær lenda í vatninu. Ég á allar tegundir á lager og get því afgreitt strax. Flugurnar eru í myndaalbúmi vinstra meginn á síðunni. Ef ykur vantar upplýsingar þá er ykkur velkomið að hringja í mig.
Neðst á síðunni er exel skjal með pöntunar formi. Ég sendi hvert á land sem er í bólu umslögum ykkur að kostnaðar lausu. Flugurnar eru hnýttar á Kamasan króka mér þykir þeir einfaldlega bestir.
Pantanir berist til flugur@internet.is
Sími 4613216 og 8209980
Ábending flugur með hvítann marabouvæng ættu að geymast sér því þær taka lit í sig.
Allar sraumflugurnar sem ég hnýti eru með marabou vængjum fyrir utan Bleik og Blá því þær eru svo lifandi í vatninu og veiða eifnaldlaga best. Ég er búsettur á Akureyri.
Bestu kveðjur Sveinn Þór.
Bloggar | Breytt 31.5.2010 kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 229
- Frá upphafi: 130753
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Pöntunarskjal












